Handel / Business

Viðskiptaspurningar til sendiráðsins

Sænska sendiráðið og sænska útflutningsráðið

Viðskipti við Svíþjóð

Í sænska sendiráðinu er starfandi viðskiptafulltrúi, sem aðstoðar sænsk og íslensk fyrirtæki, sem eru í leit að viðskiptatækifærum.

Sendiráðið aðstoðar sænsk utlutningsfyrirtæki við:

að finna og meta heppilega viðskiptaaðila á Íslandi
að finna upplýsingar um vörusýningar á Íslandi
að setja upp fundi við vipskiptaaðila
að vinna minni markaðsrannsóknir
að finna hentugt skrifstofuhúsnæði
að setja upp ráðstefnur og námskeið
þátttöku í vörusýningum á Íslandi

Sendiráðið getur einnig aðstoðað íslensk fyrirtæki við:

að finna heppilega viðskiptaaðila í Svíþjóð
að hafa upp á vissum vörum og framleiðendum
að finna upplýsingar um vörusýningar í Svíþjóð

Vinsamlegast hafið samband við
Ragnheiði D. Ísaksdóttur, viðskiptafulltrúa
netfang: ragnheidur.isaksdottir@foreign.ministry.se

Á Íslandi er einnig starfandi sænsk-íslenskt verslunarráð

Viðskipti við Ísland

Samskipti Íslands og Svíþjóðar mótast af viðskiptatengslum og menningarsamstarfi, en ekki síður af tíðum heimsóknum og ferðalögum á milli landanna.

Árlegur innflutningur á sænskum vörum hefur fyrir löngu farið yfir einn miljarð SEK. Fluttur er inn pappír, lyf, vélar, farartæki, smurolíur/feiti, byggingarefni, símtæki og fleira. Sænsk vörumerki, með Volvo, Scania og IKEA fremst í flokki, eru vel þekkt á Íslandi. Útflutningsvörur frá Íslandi (u.þ.b. 200 miljónir SEK) eru fyrst og fremst síld, rækjur, ferskur fiskur, hrogn og aðrar sjávarafurðir, ásamt þjónustu (sér í lagi fjármálaþjónusta). Síðastliðið ár nam fjárfesting Svía á Íslandi um 80 miljónum SEK, en fjárfesting Íslendinga var mun meiri (KB banki, Baugur, Bakkavör o.fl.). Fjöldi sænskra ferðamanna eykst stöðugt og er nú um 25.000 á ári, ekki síst vegna aukins fjölda ráðstefnugesta og starfsmanna í hvataferðum fyrirtækja. Fjöldi Svía sem búsettir eru á Íslandi hleypur á hundruðum, en rúmlega 4.000 Íslendingar eru búsettir í Svíþjóð. Að minnsta kosti 40.000 Íslendingar hafa verið búsettir í Svíþjóð til lengri tíma (meira en sex mánuði).

Árið 1997 var komið á fót sænsk-íslensku verslunarráði sem nú telur um 50 meðlimi, þ.á.m. 10 sænsk fyrirtæki.

Hvað varðar menningarsamskipti þjóðanna þá gegnir Norræna húsið þar mikilvægu hlutverki, í nánu samstarfi við norrænu sendiráðin. Þar fyrir utan veitir Svíþjóð styrki til sameiginlegra verkefna af ýmsum toga, og veitir fjárstuðning til sænskukennslunnar í íslenskum skólum og við Háskóla Íslands. Sænsk-íslenskur samstarfssjóður hefur verið starfandi frá árinu 1994. Í nóvember 2002 fóru fram tvíhliða viðræður á milli embættismanna landanna, sem ætlunin er að endurtaka árlega. Árið 2004 munu Svíar með ýmsum hætti minnast 60 ára afmæli íslenska lýðveldisins. Einnig munu þeir minnast þess að 60 ár eru síðan Hannes Hafstein varð fyrsti íslenski ráðherrann og að 130 ár eru síðan Íslendingar fengu sína eigin stjórnarskrá.

feb 2006