Þema bókasafnsvikunnar í ár er Stríð og friður á Norðurlöndunum. Í ár eru liðin 200 ár frá því gamla sænska ríkið klofnaði og Svíþjóð varð til eins og við þekkjum og Finnland varð stórfurstadæmi undir rússneska keisaranum.
Anders Ljunggren sendiherra Svíþjóðar og Hannu Hämäläinen sendiherra Finnlands á Íslandi munu koma fram og fjalla um þessi tímamót í sögunni. Þeir búa báðir yfir yfirgripsmikilli þekkingu á sögu landa sinna og munu miðla henni í þessari dagskrá. Leikkonan Brynhildur Guðjónsdóttir flytur ljóðabálkinn um Fänrik Ståhl eða Gamla Stál eftir þjóðskáld Finna Johan Ludvig Runeberg. Dagkráin fer fram á sænsku.
Staður: Norræna húsiðStund: Þriðjudagur 10. nóvember, kl.20:00Boðið er upp á léttar veitingar. Allir velkomnir, aðgangur ókeypis.
Sérstök dagskrá verður í boði fyrir börn og unglinga snemma mánudags og þriðjudags. Leikarinn Felix Bergsson les upp fyrir leikskólabörn úr bókinni Einar Áskell og stríðspabbinn eftir Gunillu Bergström. Aðrir höfundar texta ársins eru Astrid Lindgren og Benny Andersen.
Norræna húsið og Norræna félagið